3f.is

3f Félag um upplýsingatækni og menntun
Þú ert hér:Forsíða
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Vel heppnaður Joomlaklúbbur
föstudagur, 25 september 2009

Í gærkvödi héldum við Joomlaklúbb í Álftamýrarskóla hjá henni Þórunni Traustadóttur. Það var fjölmennt og mjög gaman.  Áhugasamir "Joomlanördar" miðluðu þekkingu sinni til hvers annars. Það að hittast sovna með óformlegum hætti er bráðsniðug leið til þess að kynnast og læra nýja hluti. Í sumum tilvikum öðlast fólk vitneskju um hluti í vefumsjónarkerfinu sem það hefur verið í vandræðum með lengi. Það er oft þannig að maður er búinn að strögla við eitthvað sem síðan reynist vera sáraeinfalt, bara ef maður kann það.

Stjórn 3f vill þakka Þórunni kærlega fyrir að bjóða okkur í skólann sinn. Ákveðið var í gærkvöldi að næsti klúbbur verði í nóvember í Flataskóla hjá Kolbrúnu Hjaltadóttur.  Við auglýsum það þegar nær dregur.

 
Heimsókn til SJÁ
fimmtudagur, 10 september 2009
Síðdegis í gær buðu þær Áslaug og Jóhanna hjá SJÁ félagsmönnum í heimsókn í fyrirtækið sitt.
Áslaug hélt erindi um það hvað ber að hafa í huga við gerð góðra skólavefja. Síðan var spjallað um úttekt á opinberum vefjum sem fyrirtækið SJÁ hefur unnið að í nokkur ár. Hægt er að sjá niðurstöður úttekta þeirra á vefsíðu Hagstofunnar og er mjög fróðlegt að skoða útkomu ákveðinna vefja eða bera saman vefi. Við skoðuðum að ganni nokkra vefi framhaldsskóla og áhugaverð niðurstaða kom upp. Áslaug benti okkur á að skoða Vefhandbókina sem er á UT-vefnum.  Áhugavert að skoða áður en hafist er handa við vefsmíðina. Á UT vefnum er svo líka að finna fræðslu um frjálsan og opinn hugbúnað.   

Stjórn 3f þakkar þeim Áslaugu og Jóhönnu kærlega fyrir höfðinglegar mótttökur.

 
Skráning hafin á ráðstefnuna
þriðjudagur, 08 september 2009

Nú er hægt að skrá sig á ráðstefnu 3f og RANNUM, Skapandi skólastarf, Opnar leiðir í námi og kennslu.
Undirbúningsnefnd vann að því hörðum höndum að fá styrktaraðila til þess að greiða niður kostnað vegna ráðstefnunnar. Það verður að segjast alveg eins og er að nú er árferðið annað en undanfarin ár. Samt sem áður getum við boðið til þátttöku á viðráðanlegu verði. Ráðstefnugjaldið er 5000 kr. og eru allar veitingar á ráðstefnustað innifaldar, morgunkaffi, hádegisverður, síðdegishressing og léttar veitingar í dagskrárlok.
 Svo má ekki gleyma því að einn heppinn þátttakandi dettur í lukkupottinn og vinnur þennan líka fína iPod frá Apple IMC á Íslandi.

Nú er bara að smella á myndina og skrá sig á mjög svo upplýsandi ráðstefnu.

 

 

 
Hver er námskeiðsþörf félagsmanna?
mánudagur, 07 september 2009

Það er einlægur vilji stjórnar 3f að koma sem mest og best á móts við þarfir félagsmanna. Stjórnin sendi því fyrir skömmu út til félagsmanna könnun þar sem að þeir gátu gefið til kynna hvers konar námskeið þeir gætu hugsað sér að sækja á vegum félagsins. Niðurstaðan liggur nú fyrir.

Nánar...
 
Netsamfélag áhugafólks um upplýsingatækni og miðlun í menntun
laugardagur, 15 ágúst 2009
Sett hefur verið upp netsamfélag fyrir þá stunda rannsóknir, kennslu og nám á sviði UT og miðlunar í menntun. Sjá http://utmidlun.ning.com.   Þar er hægt að mynda undirhópa þeirra sem stundað hafa nám í upplýsingatækni.   Netsamfélagið er sett upp að frumkvæði RANNUM. Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun. Mikil þróun er nú að eiga sér stað varðandi nýtingu alls kyns kerfa til uppbyggingar netsamfélaga. Flestir á Íslandi eru þegar komnir með reynslu af að nýta Facebook kerfið og er NING á margan hátt svipað að uppbyggingu en sérstaklega ætlað til notkunar í menntageiranum.
 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 41 - 50 af 61