Stórsýningin Netið 2010 verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind dagana 12-14. mars. Markmið sýningarinnar er að kynna nýjungar, þjónustu og möguleika sem eru í boði á íslenskum netmarkaði. Yfir 30 fyrirtæki hafa boðað þátttöku sína og því ástæða til þess að benda félagsmönnum á að líta við í Vetrargarðinum.