3f.is

3f Félag um upplýsingatækni og menntun
Þú ert hér:Forsíđa
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Iceweb 2010 verđur haldiđ 7 og 8 október
ţriđjudagur, 07 september 2010

Ráðstefnan Iceweb fer fram nú fram í þriðja sinn daga 7 og 8 október.

Að venju flytjum við inn hóp af erlendum sérfræðingum sem halda bæði vinnustofur og flytja fyrirlestra:

  • Tara Hunt
  • Andy Budd
  • Simon Collison
  • Karen McGrane
  • Relly Annett-Baker
  • Jonathan Stark

Nánar á http://www.icewebconference.com/

Skráning er ekki hafin en vinna við vefinn er enn í fullum gangi. Þið getið fylgst með gangi mála en hönnuður og aðstandendur birta samskipti og allir geta tekið þátt.

Verð fyrir félagsmenn SVEF er 20.000 kr, en verðið hækkar sem nær dregur ráðstefnunni.

Nánar á: http://icewebconference.com/prices/

 
E2BN - This Generation's Learning
mánudagur, 05 júlí 2010
 This Generation's Learning ráðstefna var haldin að þessu sinni af East of England Broadband Consortium 28 og 29. júní í The Robinson Centre, Wyboston, Beds í Englandi.
Þessi áhugaverða ráðstefna og sýning höfðaði til allra kennara sem áhuga hafa á áhrifum nýrrar tækni á skólastarf.      

Ráðstefnan í ár bar yfirheitið  “Nám þessarar kynslóðar”. Á ráðstefnunni var litið á rétt nemandans og skoðað hvernig upplýsinga-og samskiptatækni hefur verið komið inn í  námskrá. Einnig var fjallað um á hvern hátt skólar nýta tæknina til þess að bjóða öllum nemendum viðfangsefni við hæfi, bæði í skólanum og heima.

 

Nánar...
 
ISTE ráđstefnan 2010
sunnudagur, 27 júní 2010

Nú stendur yfir árleg ráðstefna ISTE (International Society for Technology in Education) í Denver í USA. Þar er fjallað um mennun og upplýsingatækni. Ráðstefnan stendur yfir frá 27. júní til 30. júní. Í einu inngangserindanna fjallaði Darren Cannell um stöðu kennarans í nútímanum og sýndi m.a. þetta myndband.

 

Á heimasíðu ráðstefnunnar er vísað í fjölmörg blogg þar sem kennarar fjalla um upplýsingatækni og menntun. Getur verið áhugavert fyrir félagsmenn 3f að skoða þau.

Einnig verða nokkur erindann birt á heimasíðu TED.

 
Stjórn 3F fundar í menntamálaráđuneytinu
mánudagur, 21 júní 2010
Þann 16. júní s.l. áttu meðlimir stjórnar 3f góðan fund í menntamálaráðuneytinu þar sem markmiðið var að frá frekari upplýsingar um framkvæmd á stefnu stjórnvalda um upplýsingasamfélagið með áherslu á nám og kennslu. Fyrir hönd ráðuneytisins voru til svara þær Sigurbjörg Jóhannesdóttir sérfræðingur og Berglind Rós Magnúsdóttir ráðgjafi ráðherra.

Meðal þess sem kom til tals á fundinum voru svokallaðir UT-leiðtogar, en stefna stjórnvalda er að efla notkun upplýsingatækni í námi og kennslu m.a. með stuðningi við UT-leiðtoga í grunn- og framhaldsskólum. Þetta er verkefni sem við í stjórn 3f höfum trú á að gæti eflt UT notkun í skólum þrátt fyrir að augljóslega verði ekki svigrúm til að framkvæmda í sama mæli og gert var ráð fyrir þegar stefnan var mótuð.

Óhætt er að segja að fundurinn hafi verið mjög gagnlegur og ákveðið var að fulltrúar 3f, Fjalar, Sólveig og Sigurbjörg hjá ráðuneytinu héldu áfram að ræða um þær hugmyndir sem fram komu. Stjórn 3f hefur miklar væntingar til þess að verkefnið um UT-leiðtoga verða að veruleika í framtíðinni.
 
Elearning viđurkenning
mánudagur, 21 júní 2010

10 ára afmæli elearning viðurkenninga verður í haust.

Leiðandi viðurkenning í Evrópu sem lýtur að framúrskarandi nýtingu á tækni í námi og kennslu. Skólum og háskólum er boðið að taka þátt og skrá sig hér  til þess að koma á framfæri þeirra bestu verkefnum þar sem tölvutæknin er nýtt í kennslu og námi.

Vinningsfé eru þúsundir evra og ný tæki og tól. Umsóknarfrestur rennur út 28. september nk.
Upplýsingar eru að finna á heimasíðu verðlaunanna eða með því að senda This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 1 - 10 af 61