3f.is

3f Félag um upplýsingatækni og menntun
Þú ert hér:Forsíða
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Heildstæð menntun á umbrotatímum - menntaþing haldið 5. mars PDF Prenta Senda

Mennta- og menningarmálaráðuneyti stendur fyrir menntaþingi þann 5. mars nk. í Valsheimilinu að Hlíðarenda. Yfirskrift þingsins er Heildstæð menntun á umbrotatímum Tilgangur þingsins er að efna til opinnar umræðu um menntastefnu. Dagskrá þingsins verður tvíþætt. Kynntar verða áherslur í nýjum námskrám allra skólastiga og afrakstur af þjóðfundum um menntamál. Að því loknu verða reifuð og rædd ýmis álitamál sem varða breyttar aðstæður í skólasamfélaginu í málstofum.

Hver málsstofa tekur 45 mínútur og hefst á stuttu innleggi um viðkomandi málefni sem fylgt verður eftir með umræðum og samantekt. Þátttakendur færast milli málstofa og gefst þannig kostur á að koma sjónarmiðum sínum að um öll viðfangsefnin. Ýmsar upplýsingar sem varpa frekara ljósi á umræðuefnin verða kynntar á vef ráðuneytisins.

Þess er vænst að þingið verði góður vettvangur til að fá upplýsingar um stöðu mála, stilla saman strengi og skiptast á skoðunum um ýmis álitamál sem tengjast menntun.

Dagskrá:

11:30 Skráning og kaffi

12:00 Ávarp ráðherra, Katrínar Jakobsdóttur

12:20 Grunnstoðir og viðmið í nýrri menntastefnu

13:10 Raddir af þjóðfundi um menntamál og frá Sóknaráætlun 2020

13:30 Léttur hádegisverður

14:00 Málstofur

a Velferð í skólum - nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn.

b Námslengd og skil milli skólastiga - endurskoðun eða óbreytt ástand?

c Framhaldsskóli fyrir alla - markmið og leiðir.

16:30 Samantekt

17:00 Þingslit

Skráning

Þátttaka í Menntaþingi verður takmörkuð við 300 þátttakendur. Skráning fer þannig fram að einstaklingar skrá sig á vef ráðuneytisins /menntathing/skraning/.

Til að tryggja að fulltrúar allra hagsmunaaðila frá ólíkum stofnunum, samtökum og landshlutum komist á þingið verður valið úr hópnum. Öllum verður tilkynnt um niðurstöðu skráningar fyrir 25. febrúar.

 
< Fyrri   Næst >