| Hugsaðu áður en þú sendir |
|
|
|
|
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir opnu málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30. Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson. Dagskrá · Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið · Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone: „Ringulreiðarmálið” - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar? · Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT: Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum · Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi: Friðhelgi á jaðri netsins · Jónas Kristjánsson, ritstjóri: Þolmörkin færðust til · Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður · Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands: Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu · Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu: Rannsókn mála tengd netinu · Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Emil Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Nýherja, veita verðlaun í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun · Pallborðsumræður · Veitingar
Málþingið verður sent beint út á netinu.
|
| < Fyrri | Næst > |
|---|