|
Styrkir úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2010 |
|
|
|
Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla árið 2010. Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal háskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, skólar, félög, fyrirtæki og aðrir.
Gert er ráð fyrir að námskeiðum verði að fullu lokið eigi síðar en við lok skólaársins 2010-2011. Verði ekki unnt að ljúka námskeiðum innan þeirra tímamarka fellur styrkveiting niður. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að allt að þriðjungi ráðstöfunarfjár verði úthlutað til verkefna sem tengjast: - Færni í upplýsingatækni við kennslu
- Námsmatsaðferðum
Frekari upplýsingar á vef SÍS. |