3f.is

3f Félag um upplýsingatækni og menntun
Þú ert hér:Forsíða
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Skýrsla formanns PDF Prenta Senda

Fundur í stjórn 3f 18. apríl 2009Aðalfundur 3F var haldinn 27. maí í Borgarholtsskóla. Fundurinn var fámennur en góður engu að síður. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf en síðan kynntu Ólafur Sigurðsson skólameistari og Ari Halldórsson, kennslustjóri lista- og fjölmiðlasviðs starfsemi skólans.

Litlar breytingar urðu á stjórn félagsins. Sólveig Friðriksdóttir (formaður), Fjóla Þorvaldsdóttir, Elín Jóna Traustadóttir og Jóhanna Geirsdóttir sitja áfram í stjórn. Björn Sigurðsson hætti en Sigurður Fjalar Jónsson kennari í FB m.m. var kosinn í hans stað.

Sjá skýrslu formanns um starf félagsins síðasta árið.

Skýrsla formanns

Ágætu fundarmenn.
Ég ætla í stuttu máli að rekja helstu verkefni félagsins á liðnu starfsári.

Eins og þið vitið þá er fagfélagið 3F vettvangur þeirra sem áhuga hafa og starfa að upplýsingatækni í menntun og innan þess eru kennarar á öllum skólastigum, frá leikskóla og upp í háskóla.

Síðasti aðalfundur og ný stjórn

Á síðasta aðalfundi sem var haldinn 22. maí 2008 fóru fram kosningar til nýrrar stjórnar. Sólveig Friðriks var áfram formaður, Fjóla áfram gjaldkeri, Björn áfram ritari, og síðan Elín Jóna og Jóhanna sem meðstjórnendur. Þau Kristján Kristjánsson og Þorbjörg Garðarsdóttir voru kosin skoðunarmenn reikninga félagsins.

Margir fundir og margt rætt

Síðastliðið starfsár var afar annasamt og eins og áður þá hafa margvísleg verkefni verið á döfinni í félaginu og stjórnarmenn verið mjög duglegir við að halda fundi. Stjórnarfundir voru a.m.k. einu sinni í mánuði en einnig var nýttur tölvupóstur og Netið til frekari samskipta þar sem rætt var ýmislegt sem tengist framgangi UT í menntun eins og nafn félagsins gefur til kynna.

Fundir og viðburðir síðasta starfsárs:

Maí – júní 2008 
Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun: Rannum.
Stjórn 3f tók ákvörðun um að félagið gerðist stuðningsaðili rannsóknarstofunnar og væntir mikils af samstarfinu.

9. júní 2008 
Stjórnarfundur á Kaffi-krús á Selfossi
• Stjórnin skiptir með sér verkum
• Rætt um skipulag fyrirhugaðrar ráðstefnu 3f ogHR 17. október 2008
• Námskeið í Joomla og í Office o.fl.

30. júní 2008 
Stjórnarfundur á kaffihúsi Sandholts á Laugavegi. Rætt um næstu viðburði:
• Ráðstefnan
• Samráðsfundur á Norðurlandi í ágúst og Vestfjörðum í haust
• Hittingur hjá leikskólakennurum 4. október
• Námskeið í Joomla og Office 2007 í september og október
• Vélritunarkeppni í 8. bekk

3. september 2008 
Stjórnarfundur í Versló
• Ráðstefna 3f og HR: Fjarnám og fjarkennsla
• Office 2007
• Kennaraþing á Suðurlandi

16. + 30. sept. 2008 
Joomla námskeið haldið í Versló. Fullbókað. Kennari S. Fjalar og honum til aðstoðar Fjóla og Ella Jóna.

26. september 2008 
Haustþing kennara á Suðurlandi haldið á Hótel Örk í Hveragerði. Ella Jóna sá um málstofu yrir hönd 3f.

4. október 2008 
Morgunverðarhittingur tölvukennara í leikskólum í Leikskólanum Furugrund hjá Fjólu. Rætt var um framhaldsnám í UT: eTwinning og Comeniusarverkefni kynnt.

17. október 208 
Ráðstefna 3f og HR um fjarnám og fjarkennslu, haldin í HR. Aðalfyrirlesari Terry Adams, Sigurlaug Kristmannsdóttir o.fl. Búinn var til borði með mynd og nafni félagsins.

29. október 2008 
Hist á sýningu í Þjóðarbókhlöðu á gömlum tölvum í tilefni af 40 ára afmæli Skýrslutæknifélags Íslands (SKÝ). Síðan var haldinn stjórnarfundur á Hótel Sögu
• Sigurbjörg í menntamálaráðuneytinu mætti. Rætt um þau UT mál sem ráðuneytið er að vinna að
• 3f hópur stofnaður á Facebook

4. + 11. nóvember 2008 
Námskeið í Office 2007 í Grunnskólanum í Hveragerði. Féll niður.

Október 2008 
Árlegur fundur samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara, formanna fagfélaga, skólamálanefndar Félags framhaldsskólakennara og fulltrúa Félags stjórnenda í framhaldsskólum. Rætt um námskeiðahald.

18. nóvember 2008 
Stjórnarfundur á Kidda rót í Hveragerði
• Námskeiðahald (Ida og opinn hugbúnaður)
• Styrkumsóknir
• Námskeið á Akureyri

21. nóvember 2008 
Námskeið í Office 2007 haldið í HA. Kennarar Sólveig og Jóhanna.
Fagfundur í VMA með UT kennurum í framhaldskólum á Norðurlandi.

13. janúar 2009 
Fundur í Versló
• Styrkumsóknir – menntamálaráðuneytið. Tvær umsóknir að þessu sinni.

13. + 20. jan. 2009 
Joomla námskeið, byrjunarnámskeið, haldið í Versló. Fullbókað námskeið og færri komust að en vildu. Kennari S. Fjalar og honum til aðstoðar Fjóla og Ella Jóna.

27. jan og 3. febr. 2009
Námskeið í Office 2007 fyrir grunnskólakennara, haldið í Grunnskólanum í Hveragerði. Fullbókað og kennarar voru Sólveig og Jóhanna.

29. janúar 2009 
Fjóla fær afhent verðlaun í eTwinning í Prag: 1.2. Buckle my shoes  Stærðfræðiverkefni með  mikla áherslu á upplýsingatækni.

9. febrúar 2009 
Stjórnarfundur á Cafe Blue.
• Endurmenntun, námskeið
• Aðalfundur 3f í Borgarholtsskóla
• Heimsókn í MB
• Ráðstefna 3f og Rannum, fundur og fleira

10. + 17. feb. 2009 
Joomla námskeið, framhald, haldið í Versló. Fullbókað námskeið og færri komust að en vildu. Kennari S. Fjalar og honum til aðstoðar var Fjóla.

20. febrúar 2009 
Kynnisferð í MB, Menntaskóla Borgarfjarðar. Farið í rútu, 22 þátttakendur. Ida og Ársæll Guðmundsson skólameistari kynntu skólann og stefnu hans, Þór Þorsteinsson frá Nepal kynnti eMission forritið.

25. febrúar 2009 
Fagfundur með upplýsingatæknikennurum á Austurlandi. Bára Mjöll aðstoðaði við að koma fundinum á laggirnar. Sólveig og Jóhanna hittu grunn- og framhaldsskóla-kennara þrátt fyrir ófærð.

2. mars 2009 
Stjórnarfundur í Versló.

12. mars 2009 
Skráðir félagar í 3f náðu tölunni 200.

24. mars 2009 
Fundur í HÍ með Sigrúnu Gunnarsdóttur: Samstarfsvettvangur um sveigjanlegt nám. Hugmynd að stofna samráðsvettvang þeirra sem eru með fjarnám, dreifnám, rafrænt nám ....  til að miðla hugmyndum og vinna saman. Fjalar og Sólveig mættu.

25. mars 2009
Bréf til menntamálaráðuneytisins þar sem óskað er eftir skýringum á breytingum á lykilhæfniþáttum og upplýsingatækni ekki lengur talin þar með.

8. apríl 2009 
Svar frá ráðuneytinu barst 8. apríl. Boðað til fundar með 3f og ráðuneytinu.

26. mars 2009 
Námskeið Endurmenntunar og skólamálanefndar FF og stjórnar FS fyrir stjórnarmenn fagfélaga: Námskrárgerð í framhaldsskólum. Björg Pétursdóttir í mrn. var fyrirlesari.

1. apríl 2009 
Kynningarfundur með Rósu Gunnarsdóttur á skrifstofu menntamála um EuroCreator á Íslandi. Fjóla mætir fyrir hönd 3f. Tekin var ákvörðun um þátttöku 3f í ráðstefnu sem haldin verður í desember á vegum ráðuneytisins. Vinnustofa verður haldin í Borgarholtsskóla með beinni útsendingu frá Menntaskóla Borgarness.

1. apríl 2009 
Fræðslufundur um opinn hugbúnað: Frjáls skólastofa. Tryggvi Björgvinsson, formaður félags um stafrænt frelsi. Um 20 manns mættu. Stutt könnun um efnið.

18. apríl 2009 
Vinnu- og skipulagsfundur stjórnarmanna á Hótel Gullfossi.

29. apríl 2009 
Joomla klúbbur – kvöldstund i vefsíðugerð hjá Margréti í Laugalækjarskóla. Kynning á Google Docs, kannanir og skráningarform (Fjóla).

30. apríl 2009 
Stjórnarfundur í Versló. Undirbúningur fyrir ráðstefnu 3f og Rannum næsta haust undir heitinu: Skapandi skólastarf – opnar leiðir í skólastarfi.

19. maí 2009  
Lokað málþing í menntamálaráðuneytinu um lykilhæfniþætti í nýrri námskrá framhaldsskóla (Sólveig). Tókst að fá upplýsingatæknina aftur inn í lykilhæfniþátt: Námsleikni og upplýsingatækni.

19. maí 2009 
Ráðstefna UT dagsins á Hilton Nordica: Upplýsingatækni til endurreisnar. Bætt þjónusta – lægri kostnaður. Björn sótti ráðstefnuna fyrir hönd 3f.

19. maí 2009 
Aðalfundur UT kvenna í HR kl. 20.

26.maí 2009 
Undirbúningsfundur vegna haustráðstefnu 3f og RANNUM.

Helstu viðburðir:

Stofnun rannsóknarstofu um upplýsingatækni og miðlun

Í maí sl. var stofnuð rannsóknarstofa um upplýsingatækni og miðlun og er 3f stuðningsaðili. Aðalmarkmið rannsóknarstofunnar er að auka og efla menntarannsóknir og þróunarstörf sem tengjast upplýsingatækni og miðlun. Upplýsingatæknibyltingin hefur valdið gríðarlegum breytingum sem móta störf og lífsstíl fólks og hvergi sér fyrir endann á. Áhrif á nám og skólastarf hafa einnig verið töluverð. Innlendar og erlendar rannsóknir benda til að tölvuvæðing grunnskóla sé langt komin hér á landi en nýting upplýsingatækninnar mun styttra. Sólveig situr í stjórn rannsóknarstofunnar fyrir hönd 3f.

Haustþing kennara á Suðurlandi

Haustþing kennara á Suðurlandi var haldið á Hótel Örk í Hveragerði 26. september sl. og sá Elín Jóna þar um málstofu fyrir hönd 3f.

Fundur Fjólu og tölvukennara í leikskólum

4. október var morgunverðarhittingur tölvukennara í leikskólum. Hist var hjá Fjólu í leikskólanum Furugrund og rætt um framhaldsnám í UT. Kynntir möguleikar í eTwinning og Comenius verkefnum.

Fjarnám og fjarkennsla – ráðstefna 3f og HR um UT

Að mati undirbúningsnefndar og þátttakenda á ráðstefnu 3f og HR föstudaginn 17. október sl. þótti ráðstefnan takast vel. Flutt voru mjög áhugaverð erindi. Verzlunarskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og menntamálaráðuneytið eiga bestu þakkir skyldar fyrir myndarlegan stuðning við ráðstefnuna. Heildarfjöldi þátttakenda var hátt í 90. Fyrir hádegi ráðstefnudaginn voru haldnir tveir fundir þar sem fulltrúum háskóla og framhaldsskóla gafst tækifæri á að spjalla við fyrirlesara en þema umræðanna var: Hvað virkar í fjarkennslu? Fundirnir þóttu takast með miklum ágætum og þyrftu svona umræður að eiga sér stað oftar. Allar glærur og fyrirlestrar voru settar á vef ráðstefnunnar.

Námskeiðahald á vegum 3f – Endurmenntun

Haldinn var  fundur í október með formönnum fagfélaga og skólamálanefndum um hagnýt atriði vegna sumarnámskeiða. Ávallt hefur verið lögð töluverð vinna í umsóknir um sumarnámskeið á vegum félagsins hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Félagið sendi inn þrjár umsóknir, námskeið í vefgerðarforritinu Joomla, Excel fyrir framhaldsskólakennara og í myndbandavinnslu. Öllum umsóknum félagsins var hafnað en þó óskað eftir samstarfi á sumarnámskeiðum í júní og/eða ágúst. Ekkert hefur þó frést af því enn sem komið er.

Vegna töluverða fyrirspurna um námskeið brá félagið á það ráð að bjóða sjálf upp á námskeið í Joomla vefsíðugerð og Office 2007, sjá hér á eftir.

Námskeið í Joomla vefsíðugerð

Auglýst voru námskeið í Joomla vefsíðugerð, byrjun og framhald, bæði fyrir og eftir jól og var fullbókað á öll námskeiðin. Komust færri að en vildu svo greinlega var þörf fyrir slík námskeið. Kennari á námskeiðunum var S. Fjalar og honum til aðstoðar voru þær Fjóla og Ella Jóna stjórnar-konur.

Joomla klúbbur

Joomla klúbburinn leit dagsins ljós eina kvöldstund i vefsíðugerð í Laugalækjarskóla (Margrét). Allir sem gátu mætt – allir aðstoða alla. Fjóla kynnti líka Google Docs, kannanir og skráningarform.

Námskeið í Office 2007 og fagfundir

Nokkur námskeið voru haldin í Office 2007, bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og einnig úti á landi. Kennarar voru þær Jóhanna Geirsdóttir og Sólveig Friðriksdóttir. Þátttaka var mjög góð á öllum námskeiðunum.

Eitt námskeið var haldið í nóvember í HA á Akureyri og síðan var fundað í VMA með UT kennurum í framhaldskólum á Norðurlandi. Annað námskeið var haldið í Grunnskóla Hveragerðis í janúar og febrúar fyrir grunnskólakennara á Suðurlandi.

Í febrúar voru haldnir fagfundir með UT kennurum í grunn- og framhaldsskólum á Austurlandi. Slæmt veður setti strik í reikninginn og færri komust á fundinn vegna ófærðar þar eystra.

Kynnisferð í MB Borgarnesi

Þann 20. febrúar var farin kynnisferð á í Menntaskóla Borgarness undir leiðsögn Idu og Ársæls Guðmundssonar skólameistara, sem kynntu skólann og stefnu hans. Þór Þorsteinsson frá hugbúnaðarfyrirtækinu Nepal kynnti forritið eMission. Þátttaka í ferðina var góð og var ferðin mjög ánægjuleg.

Umsóknir í þróunarsjóð

Eins og undanfarin ár þá fer félagið yfir umsóknir um styrki til námsefnisgerðar sem sendar eru í þróunarsjóð framhaldsskóla og er á vegum menntamálaráðuneytis en það er eitt af verkefnum fagfélagsins gagnvart ráðuneytinu.

Námskeið hjá Endurmenntun

26. mars var haldið námskeið hjá samstarfsnefnd EHÍ fyrir formenn og stjórnarmenn fagfélaga, skólamálnefnd FF og stjórn FS um námskrárgerð í framhaldsskólum.

Margrét í MK setti námskeiðið og Björg Pétursdóttir í menntamálaráðuneytinu flutti fyrirlestur um lykilhæfniþætti og fleira í námskrárgerð ráðuneytisins.
Kynning á opnum hugbúnaði

1. apríl var haldinn fræðslufundur um opinn hugbúnað: Frjáls skólastofa. Tryggvi Björgvinsson, formaður félags um stafrænt frelsi, ræddi um stafrænt frelsi og skólastarf. Um 20 manns mættu og hlýddu á erindi Tryggva. Björn sá um að gera stutta könnun um efnið, niðurstöðurnar á vef félagsins.

EuroCreator

1. apríl var haldinn fundur um EuroCreator og möguleika þess og sótti Fjóla fundinn fyrir hönd félagsins. Tekin var ákvörðun um þátttöku 3f í ráðstefnu sem haldin verður í desember á vegum ráðuneytisins. Vinnustofa verður haldin í Borgarholtsskóla með beinni útsendingu frá Menntaskóla Borgarfjarðrar. Á döfinni er að tengja notkunina á þessu tóli við ráðstefnu okkar í haust og þema hennar.

Upplýsingatækni sem lykilhæfniþáttur

Menntamálaráðuneytið setti fram á haustdögum og fram eftir hausti drög að skilgreiningu á átta lykilhæfniþáttum (key competences) sem grundvalla eiga almenna menntun og námskrárgerð samkvæmt nýjum lögum um nám og kennslu. Þessir hæfniþættir byggja á skilgreiningu Evrópu-sambandsins.

Þegar ljóst var að upplýsingatæknin var ekki lengur inni sem lykilhæfniþáttur hjá Menntamálaráðu-neytinu var sent bréf til ráðuneytisins (í mars) þar sem óskað var eftir skýringum á breytingum á lykilhæfniþáttum og upplýsingatækni ekki lengur talin þar með. Svar frá ráðuneytinu barst 8. apríl og boðað m.a. til fundar með 3f og ráðuneytinu.

Lokað málþing var svo haldið í menntamálaráðuneytinu um lykilhæfniþætti í nýrri námskrá framhaldsskóla. Í umræðuhópum sem þar voru tókst að fá upplýsingatæknina aftur inn í lykilhæfniþátt sem ber nú heitið Námsleikni og upplýsingatækni. Ásættanleg niðurstaða að okkar mati þó við hefðum viljað halda upplýsingatækninni sem einum lykilhæfniþætti.

Vefsíða félagsins, félagatal, póstlisti og Facebook

Vefsíðan er í stöðugri þróun og alltaf nýjar fréttir og tilkynningar. Skráðir félagsmenn eru nú orðnir 210 og alltaf að bætast fleiri við.
Tilkynningar og fréttir eru sendar reglulega af póstlistanum og inn á vefsíðu félagsins.

Einnig var stofnaður 3f hópur á Facebook til að kynna starfsemi félagsins, fá fleiri félagsmenn, koma upplýsingum til félagsmanna og auka tengsl/samskipti milli þeirra.

Verkefni sem eru framundan:

  1. Ráðstefnan Skapandi skólastarf – opnar leiðir í skólastarfi 2.–3. október nk.
    Fjóla og Sigurður Fjalar voru tilnefnd fyrir hönd 3f í undirbúningsnefnd og Sólveig Jakobsdóttir er fyrir hönd Rannum. Eins og alltaf þá fer mikill tími í að skipuleggja og koma svona ráðstefnu á laggirnar en það er von okkar að það muni takast vel.
  2. Koma vélritunarkeppni af stað í grunnskólum landsins á næsta skólaári, byrja smátt.
  3. Styðja við bakið á UT kennurum með námskeiðum o.fl.
  4. Fá enn fleiri félaga inn og enn meiri virkni.


Látins félaga minnst

Að lokum er við hæfi að minnast látins félaga en Ingólfur Sigurðsson, fagstjóri og kennari bakardeildar Menntaskólans í Kópavogi lést þann 19. febrúar sl. eftir erfið veikindi. Ingólfur var virkur félagi og mikill áhugamaður um framgang upplýsingatækninnar í námi og starfi. Blessuð sé minning hans.
Svo er það von mín að félagið verði áfram öflugt og virkt til gagns fyrir sem flesta sem starfa að UT málum í skólakerfinu.

Takk fyrir.

Sólveig Friðriksdóttir formaður 3f

 
< Fyrri   Næst >